Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, um að fela flóttamannanefnd að útfæra tillögur um sérstaka móttöku viðkvæmra hópa flóttafólks frá Úkraínu, og eftir atvikum tillögur sem eru til þess fallnar að létta á álagi í nágrannaríkjum Úkraínu vegna fjölda flóttafólks.
Í tilkynningu frá stjórnarráðinu
segir að ríkisstjórnin telji mikilvægt að huga að hópum sem eru í sérlega viðkvæmri stöðu. Þá muni flóttamannanefnd leita bæði til sveitarfélaga og stofnana um hvar sé svigrúm til þess að veita slíka aðstoð, ásamt því að leita til félagasamtaka sem hafa sérþekkingu á þeim hópum sem um ræðir, t.d. til Landssamtakanna Þroskahjálpar, Öryrkjabandalags Íslands, Samtakanna ´78 og Ljóssins.
Landssamtökin Þroskahjálp fagna þessum aðgerðum stjórnvalda í þágu jaðarsettra hópa í Úkraínu, og hafa átt opið og gott samtal við stjórnvöld s.l. vikur.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
