Þroskahjálp merki
EN

Við eigum öll rétt til náms!

Ég sótti þá mögnuðu ráðstefnu Nám er fyrir okkur öll í vikunni. Þegar ég gekk í salinn fór um mig gleði og baráttutilfinning.

Birt þann:

31.03.2022

Við eigum öll rétt til náms!

Greinin birtist fyrst á Vísi þann 31. mars 2022

Ég sótti þá mögnuðu ráðstefnu Nám er fyrir okkur öll í vikunni. Þegar ég gekk í salinn fór um mig gleði og baráttutilfinning. Þetta var troðfullur salur af fólki sem á það sameiginlegt að hafa verið sett til hliðar í uppbyggingu íslenska menntakerfisins en segir nú: Hingað og ekki lengra!

Á ráðstefnunni töluðu fötluð ungmenni og fullorðið fatlað fólk um tækifærin sem þau myndu svo gjarnan vilja hafa. Tækifærin sem við öll hin höfum. Einlægnin, kjarkurinn og baráttuandi þessara frábæru einstaklinga sem hver og einn tók ákvörðun um að stíga fram skein svo sterkt í gegn. Þarna heyrðust raddirnar sem skiptir svo miklu máli að hlustað sé á.

Þau sögðu reynslusögurnar sínar um vonina og þrána og hversu óskiljanlegt það er að vera ekki talin verðug þess að njóta menntakerfisins okkar. Hvers vegna í veröldinni erum við að hafna þátttöku fatlaðs fólks með þessum hætti? Á sama tíma og við höfum skuldbundið okkur til annars. Mannréttindasáttmáli Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks kveður alveg skýrt á um réttindi fatlaðs fólks til náms. Fötluð ungmenni sækja leik- og grunnskóla eins og önnur börn og langflest sækja nám á starfsbrautum framhaldsskólanna. En við 20 ára aldurinn er líkt og þessir einstaklingar búi ekki lengur í sama samfélagi og áður því við tekur ekkert nema óvissa og of fá tækifæri og hverjar dyrnar lokast á eftir annarri. En við þurfum ekki að hafa þetta svona. Við getum einfaldlega breytt kerfinu okkar og gert mikið mikið betur.

Á hverju ári útskrifast 65-90 fötluð ungmenni af starfsbrautum framhaldsskólanna.

Fötluð ungmenni sem hafa farið í gegnum skólakerfið frá leikskóla yfir í grunnskóla og standa á sömu tímamótum og ófatlaðir jafnaldrar við útskrift úr framhaldsskóla. Eftirvænting og tilhlökkun ætti að vera þeim efst í huga líkt og annarra ungmenna. En menntakerfið skapar ekki rými fyrir alla. Bara suma. Og bara á fáum, afmörkuðum námsleiðum. Það er allt rangt við það hvernig kerfið okkar er að mæta þessum dýrmæta hópi og við því þarf að bregðast. Enginn mælir þessu bót, enginn telur það sanngjarnt eða réttlætanlegt að fatlað fólk njóti ekki sömu réttinda og annað fólk. Kerfið er mannanna verk og því er ekki eftir neinu að bíða.

Tökum höndum saman og sköpum námstækifæri fyrir öll. Líka fötluð ungmenni.

Höfundur er verkefnastjóri samhæfingar námsframboðs og atvinnutækifæra hjá Landssamtökunum Þroskahjálp.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt