Velheppnuð málstofa um stöðu og réttindi seinfærra foreldra og barna þeirra
Landssamtökin Þroskahjálp og Minningarsjóður Jóhanns Guðmundssonar stóðu fyrir málstofu um ofangreint efni föstudaginn 27. október. Á málstofunni var farið yfir hver sé lagalega staða þessara mála og hvaða aðstoð og hvernig staðið er að þeirri aðstoð sem seinfærir foreldrar og börn þeirra eiga rétt á. Síðast en ekki síst fjölluðu seinfærir foreldrar sjálfuir um hvaða aðstoð gæti gagnast þeim best. Málstofuna sóttu um 170 manns auk þess sem henni var streymt og er hægt að nálgast efni hennar hér
Niðurstaða ráðstefnunnar var að margt er mjög vel gert á þessu málasviði, en ástæða sé til að skoða hvort ekki megi gera þar enn betur.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
