Þroskahjálp merki
EN

Vel heppnaður fulltrúafundur í Stykkishólmi.

Fulltrúafundur Landsamtakanna Þroskahjálpar var haldinn á Hótel Stykkishólmi dagana 12. og 13. október. Fulltrúafundir samtakanna eru haldnir annað hvert ár í landsfjórðungunum til skiptis. Fundurinn var settur á föstudagskvöld með ræðu formanns Gerðar A. Árnadóttur ávarp fluttu einnig Sigríður Ingibjörg Ingadóttir formaður velferðanefndar Alþingis og Lárus Hannesson forseti bæjarstjórnar í Stykkishólmi.

Birt þann:

15.10.2012

Á laugardaginn var síðan málþing undir yfirskriftinni " Fjölskyldan – þjónusta og hlutverk". Á málþinginu voru flutt erindi sem með einum eða öðrum hætti snertu hlutverk fjölskyldna fatlaðra barna. Það var samdóma álit gesta að málþingið hefði verið afar fjölbreytt og fróðlegt.

Að málþingi loknu hófst síðan hinn eiginlegi fulltrúfundur kjörinna fulltrúa. Á þeim fundi var farið yfir starf samtakanna og fjárhag auk þess sem ályktir voru samþykktar. Að loknum fulltrúfundi var síðan hátíðarkvöldverður með skemmtiatriðum frá heimamönnum.

Að morgni sunnudags var ekið til Reykjavíkur í afar fögru veðri og var það mál manna að helgin hefði bæði verið gagnleg og gleðileg.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt