Landssamtökin Þroskahjálp þakka fyrir að hafa fengið þingsályktunartillöguna til umsagnar og lýsa eindregnum stuðningi við hana.
Í skýrslu starfshóps um endurskoðun laga nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, sem skilað var til félags og vinnumarkaðsráðherra í apríl 2022, er að finna upplýsingar um fullkomlega óásættanlega stöðu í húsnæðismálum fatlaðs fólks. Í skýrslunni eru einnig ýmsar góðar tillögur um hvernig stjórnvöld geti eigi að bregðast við því. (Sjá hlekk að neðan).
https://www.stjornarradid.is/library/04-Raduneytin/Felagsmalaraduneytid/Sk%C3%BDrsla%20starfsh%C3%B3ps%20um%20heildarendursko%C3%B0un%2038-2018.pdf
Á fulltrúafundi Landssamtakanna Þroskahjálpar, sem var haldinn í október 2022 og aðildarfélög samtakanna taka þátt í, var eftirfarandi ályktun samþykkt.
Fulltrúafundur Landssamtakanna Þroskahjálpar fagnar tillögum starfshóps um endurskoðun laga nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, varðandi húsnæðismál fatlaðs fólks og skorar á ríkisstjórnina og sveitarfélög að hrinda þeim tillögum í framkvæmd, eins skjótt og nokkur kostur er.
Margt fólk með þroskahömlun eða skyldar fatlanir hefur beðið eftir íbúð, sem það á lagalegan rétt á, mjög lengi. Dæmi eru um að fólk með þroskahömlun hafi þurft að bíða yfir áratug og jafnvel lengur eftir að eignast eigið heimili.
Með þessari óforsvaranlegu og ólöglegu framkvæmd er vegið mjög alvarlega að margvíslegum mikilvægum mannréttindum, s.s. réttinum til sjálfstæðs og eðlilegs lífs, og réttinum til að eiga einkalíf og fjölskyldulíf. Þetta er ólíðandi ástand sem ábyrg stjórnvöld ríkis og sveitarfélaga verða að setja í algjöran forgang að bæta úr.
Virðingarfyllst.
Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar
Nálgast má þingsályktunartillöguna sem umsögnin á við hér
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.