Þroskahjálp merki
EN

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um tillögu til þingsályktunar um orlofshúsnæði örorkulífeyrisþega, 98. mál.

Birt þann:

16.02.2022

Landssamtökin Þroskahjálp þakka fyrir að hafa fengið þingsályktunartillöguna til umsagnar og vilja koma eftirfarandi á framfærandi við velferðarnefnd og Alþingi varðandi hana.

Örorkulífeyrisþegar eru mjög oft ekki með réttindi hjá stéttarfélögum og hafa yfirleitt miklu minni aðgang að orlofshúsum en landsmenn almennt og þar með minni og færri tækifæri til þeirrar tilbreytingar, afþreyingar, félags og fjölskyldulífs sem þau veita.

Aðgangur að orlofshúsum er óumdeilanlega mikilvægur þáttur í því sem telst vera eðlilegt líf hér á landi. Tækifæri til eðlilegs lífs til jafns við aðra er meginmarkmið í réttindabaráttu fatlaðs fólks og grundvallarþáttur í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Landssamtökin Þroskahjálp lýsa því eindregnum stuðningi við þingsályktunartillöguna og hvetja velferðarnefnd eindregið að beita sér fyrir því að hún verði samþykkt.

Landssamtökin Þroskahjálp óska jafnframt eftir að fá fund með velferðarnefnd til að gera nefndinni betur grein fyrir áherslum sínum og sjónarmiðum sínum varðandi þingsályktunartillöguna.

Virðingarfyllst,

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar

Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar

Nálgast má þingsályktunartillögu sem umsögnin á við hér.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt