Þroskahjálp merki
EN

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um tillögu til þingsályktunar um orlofshúsnæði örorkulífeyrisþega

Birt þann:

27.10.2022

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um tillögu til þingsályktunar um orlofshúsnæði örorkulífeyrisþega, 88. mál.

Landssamtökin Þroskahjálp þakka fyrir að hafa fengið þingsályktunartillöguna til umsagnar og vilja koma eftirfarandi á framfærandi við velferðarnefnd og Alþingi varðandi hana.

Örorkulífeyrisþegar eru mjög oft ekki með réttindi hjá stéttarfélögum og hafa yfirleitt miklu minni aðgang að orlofshúsum en landsmenn almennt og þar með minni og færri tækifæri til þeirrar tilbreytingar, afþreyingar, félags- og fjölskyldulífs sem þau veita og þykja sjálfsögð í íslensku samfélagi.

Aðgangur að orlofshúsum er óumdeilanlega mikilvægur þáttur í því sem telst vera eðlilegt líf hér á landi. Vernd gegn mismunun á öllum sviðum og tækifæri til eðlilegs lífs til jafns við aðra eru meginmarkmið Í réttindabaráttu fatlaðs fólks og grunvallarþættir í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem íslenskra ríkið fullgilti árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir: “Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verður lögfestur.” Þá samþykkti ríkisstjórnin 1. júlí sl. að vinna að að gerð landsáætlunar um innleiðingu á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og að það verði liður í lögfestingu samningsins sem kveðið er á um í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.

Með vísan til þess sem að framan er rakið lýsa Landssamtökin Þroskahjálp eindregnum stuðningi við þingsályktunartillöguna og hvetja velferðarnefnd eindregið til að beita sér fyrir því að hún verði samþykkt og skora á Alþingi að samþykkja hana.

Landssamtökin Þroskahjálp óska jafnframt eftir að fá fund með velferðarnefnd til að gera nefndinni betur grein fyrir áherslum sínum og sjónarmiðum sínum varðandi þingsályktunar-tillöguna.

Virðingarfyllst,
Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar
Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar

Nálgast má þingsályktunartillögu sem umsögnin á við hér.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt