Þroskahjálp merki
EN

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um tillögu til þingsályktunar um innleiðingu lýðheilsumats í íslenska löggjöf, 25. mál

Birt þann:

14.03.2023

Landssamtökin Þroskahjálp styðja þingsályktunartillöguna.

Það er mikilvægt skref til framtíðar að innleiða lýðheilsumat til að bregðast við þeim áskorunum sem framundan eru í tengslum við almenna heilsu landsmanna.

Margar og miklar vísbendingar eru um að heilsa fólks með þroskahömlun og skyldar fatlanir og einhverft fólk sé almennt lakari en annarra og jafnframt um að aðgengi þessa hóps að upplýsingum, úrræðum og heilsutengdum forvörnum og lýðheilsustarfi sé verulega ábótavant. Á þetta m.a. við um átaksverkefni til heilsueflingar, aðgengi að viðeigandi stuðningi og fræðslu um heilsueflingu og sértæk úrræði til að efla heilsu og vellíðan. Mjög mikilvægt er að er að tryggja að allir hafi jöfn og raunhæf tækifæri til að njóta þess sem gert er á sviði almennrar lýðheilsu og að í því sambandi sé sérstaklega litið til aðstæðna, þarfa og réttinda fatlaðs fólks.

Íslenska ríkið fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja öllum ákvæðum hans. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að samningurinn verði lögfestur og þá er nýlega hafin af hálfu ríkisins framkvæmd sérstakrar landsáætlunar um innleiðingu hans.

Í sambandi við það mál hér er til umsagnar þarf líta réttinda fatlaðs fólks og til skyldna sem hvíla á stjórnvöldum samkvæmt 5. gr. samningsins, sem hefur yfirskriftina Jafnrétti og bann við mismunun og 25 gr., sem hefur yfirskriftina Heilbrigði.


Virðingarfyllst.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar

Nálgast má lagafrumvarpið sem umsögnin á við hér.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt