Þroskahjálp merki
EN

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um handbók um NPA – drög.

Birt þann:

28.03.2019

Landssamtökin Þroskahjálp vilja á þessu stigi koma eftirfarandi á framfæri varðandi drög að handbók um NPA en áskilja sér rétt til að koma frekari ábendingum og athugasemdum á framfæri síðar og vísa í því sambandi til samráðsskyldu stjórnvalda samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk og samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks.

Samtökin telja eðlilegt og æskilegt að í upphafi handbókarinnar komi skýrt fram hvert er markmiðið með gerð bókarinnar og hvaða hlutverki henni er ætlað að gegna.

Samtökin telja að það vanti betri umfjöllun um hvernig eigi að meta framlag aðstoðarverkstjórnanda til launa. Mikilvægt er að hafa þetta skýrt til að tryggja að fólk sem þarf aðstoðarverkstjóra til að geta nýtt sér NPA hafi sama aðgang og tækifæri til að njóta þeirrar þjónustu og þeir sem geta séð um verkstjórn sjálfir. Samtökunum er einnig kunnugt um að starfsfólk í félagsþjónustu er óánægt með að það skorti leiðsögn um hvernig er best að finna þetta út.

Samtökin telja veigamikil rök fyrir því að eðlilegra sé að einstaklingsbundin þjónustuáætlun sé á ábyrgð viðkomandi sveitarfélags og að ekki verði heimilt að „útvista“ henni til umsýsluaðila gegn greiðslu. Útfærsla á þessum þætti varðandi NPA var aldrei kláruð í vinnu verkefnisstjórnar.

Samtökin telja að í kaflanum „Skipulag NPA“ í handbókinni þurfi meðal annars m.t.t. réttaröryggis og jafnræðis að kveða skýrar á um að NPA skuli vera í boði fyrir allt fatlað fólk hvar sem það býr. Núna stendur þar varðandi þetta: „Gert er ráð fyrir því að NPA verði valkostur í hverju sveitarfélagi.“

Samtökin telja að í kaflanum í handbókinni um félagsþjónustu þurfi að koma skýrar fram að NPA notandi eigi rétt á því að sækja ráðgjöf til félagsþjónustunnar á sama hátt og aðrir íbúar þó að hann sé kominn með samning um NPA.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt