Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um sorgarleyfi. 593. mál.
Landssamtökin Þroskahjálp þakka fyrir að hafa fengið frumvarpið til umsagnar.
Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fötluð börn og ungmenni og fólk með þroskahömlun. Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, Barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum.
Samtökin fagna því að frumvarpið hafi verið lagt fram og hvetja Alþingi til að hraða meðferð og samþykkt þess þannig að það verði sem fyrst að lögum.
Virðingarfyllst.
Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar
Anna Lára Steindal, verkefnastjóri hjá Þroskahjálp í málefnum fatlaðra barna og ungmenna
Nálgast má frumvarpið sem umsögnin á við hér.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.