Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um námsgögn, mál nr. S-74/2024
Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir og einhverft fólk og fötluð börn og ungmenni. Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum, sem og heimsmarkmiðum SÞ, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.
Samtökin fagna frumvarpinu og að stefnt sé að því að efla umgjörð og stuðning við útgáfu námsgagna og að námsgögn verði gjaldfrjáls fyrir nemendur í leik-, grunn- og framhaldsskólum fram að 18 ára aldri.
Mikilvægt er að efla til muna útgáfu námsefnis og þarf þá einnig að hafa sérstaklega í huga efni fyrir nemendur sem að þurfa á aðlöguðu námsefni að halda á öllum skólastigum.
Í greinagerðinni kemur fram að í menntastefnu til ársins 2030 þurfi að auka aðgengi leikskóla að útgefnu námsefni Menntamálastofnunar og aðgengi framhaldsskóla að námsgögnum fyrir nemendur á starfsbrautum.
Mikil vöntun er á vönduðu námsefni fyrir fjölbreyttan nemendahóp á öllum skólastigum til að stuðla að einstaklingsmiðaðri kennsluháttum. Vöntun er á námsefni fyrir þá nemendur sem þurfa mögulega aðlagað námsefni og á auðlesnu máli í takt við inngildandi menntun og þörfinni á þjónustu og stuðningi.
Mikill tími kennara, sérkennara og annarra fagaðila fer í að vinna og búa til efni efni sem hentar nemendum hverju sinni.
Samtökin taka undir umsögn Hljóðbókasafns Íslands þar sem bent er á mikilvægi þess að námsgögn séu aðgengileg fyrir blinda, sjónskerta og fólk sem glímir við lestrarhömlun.
Landssamtökin Þroskahjálp lýsa miklum vilja til virks og náins samstarfs og samráðs við hlutaðeigandi stjórnvöld um þau mál sem hér eru til umfjöllunar og vísa í því sambandi til 3. mgr. 4. gr. samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, sem hefur yfirskriftina Almennar skuldbindingar:
Þegar aðildarríkin undirbúa löggjöf sína og stefnu samningi þessum til framkvæmdar og vinna að því að taka ákvarðanir um málefni sem varða fatlað fólk skulu þau hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, einnig fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.
Virðingarfyllst
Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar
Katarzyna Kubiś, verkefnastjóri hjá Þroskahjálp
Nálgast má málið sem umsögnin á við hér
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.