Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir, einhverft fólk og fötluð börn og ungmenni. Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum sem íslenska ríkið hefur undirgengist, sem og á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.
Fatlað fólk er oft mjög háð leigubifreiðakstri og jafnframt mjög berskjaldað gagnvart ýmis konar ofbeldi og/eða misnotkun, þ.m.t. fjárhagslegri, eins og rannsóknir sanna. Samtökunum hafa borist margar ábendingar þess efnis að farþegar hafi þurft að greiða verulega háar fjárhæðir fyrir ferðir og að engar leiðir hafi verið fyrir notendur til að koma sínum kvörtunum á framfæri. Það er því mjög mikilvægt að auðrekjanlegt sé hvaða leigubifreið og eða leigubifreiðastöð viðkomandi hefur átt í viðskiptum við. Vegna þessa er mikilvægt að felld verði niður heimild rekstrarleyfishafa til að reka leigubifreiðastöð þar sem aðeins ein leigubifreið hefur afgreiðslu, sem og þær breytingar að leigubifreiðastöðvum verði gert að taka við rafrænum upplýsingum um upphafs- og endastöð ferðar, um staðsetningu meðan á ferðinni stendur, að greiðsla sé skráð í gjaldmæli eða með öðrum fullnægjandi hætti að ferð lokinni og að aðrar nauðsynlegar ráðstafanir verði til að tryggja öryggi og réttindi neytenda.
Virðingarfyllst.
Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar
Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar
Málið sem umsögnin fjallar um má finna hér
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.