Þroskahjálp merki
EN

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (hækkun lífeyris), 6. mál.

Birt þann:

09.10.2019

Landssamtökin Þroskahjálp þakka fyrir að fá frumvarpið sent til umsagnar og vilja koma eftirfarandi á framfæri við velferðarnefnd og Alþingi varðandi það.

Landssamtökin Þroskahjálp lýsa eindregnum stuðningu við frumvarpið og skora á velferðarnefnd að beita sér fyrir því að það verði að lögum.

Sá hópur fólks sem býr við alverstu kjörin í íslensku samfélagi eru þeir sem engar tekjur hafa aðrar en bætur frá Tryggingastofnun ríkisins. Þær bætur eru af óútskýrðum og órökstuddum ástæðum umtalsvert lægri (um 30.000 kr.) en atvinnuleysisbætur, sem enginn er þó of sæll af. Staðreyndin er hins vegar sú að atvinnuleysisbætur eru tímabundið ástand á meðan örorkuþegar eru í þessari kröppu stöðu árum saman og margir allt sitt líf, án tækifæra til þess að afla sér annarra tekna.

Örorkuþegar hafa ítrekað setið eftir á síðustu árum. Sú hækkun sem boðuð er í frumvarpi til fjárlaga vegna ársins 2020 er langt undir hækkun lágmarkslauna. Því er óhjákvæmilegt að minna ríkisstjórnina og Alþingi á 69. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, sem hljóðar svo:

Bætur almannatrygginga, svo og greiðslur skv. 63. gr. og fjárhæðir skv. 22. gr., skulu breytast árlega í samræmi við fjárlög hverju sinni. Ákvörðun þeirra skal taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. (Undirstr. Þroskahj.).

Landssamtökin Þroskahjálp óska eindregið eftir að fá að koma á fund velferðarnefndar til að gera betur grein fyrir sjónarmiðum sínum og áherslum varðandi frumvarpið.

Virðingarfyllst,

f.h. Landssamtakanna Þroskahjálpar,

Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður.

Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri.

Frumvarpið sem umsögnin á við má lesa hér

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt