Þroskahjálp merki
EN

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um félagslega aðstoð og lögum um almannatryggingar (framfærsluuppbót og meðferð atvinnutekna), 954. mál.

Birt þann:

06.06.2019

Landssamtökin Þroskahjálp þakka fyrir að hafa fengið frumvarpið sent til umsagnar og vilja koma eftirfarandi á framfæri varðandi það.

Samtökin telja að líta verði svo á að hér sé aðeins um fyrstu aðgerð að ræða af hálfu stjórnvalda til að rétta hlut öryrkja og að strax á haustþingi hljóti að vera að vænta fleiri breytinga á lögum og reglum í því skyni.

Samtökin telja að sú breyting sem er að finna í f. lið 1 gr. frumvarpsins um að telja aðeins 50% af fjárhæð aldurstengdrar uppbótar til tekna við útreikning framfærsluupbótar sé til bóta. Sú breyting kæmi sér best fyrir þá sem hafa haft skerðingar frá unga aldri og eiga þar af leiðandi lítinn sem engan rétt í lífeyrissjóðum og eru almennt eignalausir eða eignalitlir.

Hvað varða lækkun skerðingarhlutfalls framfærsluupbótar telja samtökin að betra og sanngjarnara hefði verið að hækka fjárhæð örorkulífeyris eða tekjutryggingar og minnka þannig vægi framfærsluuppbótar í heildargreiðslum.

Grunnbætur almannatrygginga (örorkulífeyrir og tekjutrygging) eru nú kr. 195.329. Með fullri aldurstengdri uppbót er fjárhæðin kr. 241.810 og að viðbættri framfærsluppbót kr. 247.183. Sú fjárhæð er 32.500 kr. lægri en atvinnleysisbætur. Þrátt fyrir ítrekaðar óskir hafa samtökin ekki fengið skýringar hlutaðeigandi stjórnvalda á því á hvaða forsendum og rökum sá munur byggist.

Landssamtökin Þroskahjálp hafa ávallt barist fyrir því að sérstaklega sé gætt að hagsmunum þeirra sem vegna sjúkdóma eða skerðinga þurfa alfarið að treysta á almannatryggingar og telja það grunnhlutverk þess kerfis að tryggja sómasamlega framfærslu þess hóps. Þær breytingar sem frumvarpið mælir fyrir um munu alls ekki leiða til þess.

Samtökin óska eindregið eftir að fá að koma á fund velferðarnefndar til að skýra sjónarmið sín, áherslur og rök í því máli sem hér er til umfjöllunar.

Virðingarfyllst,

f.h. Landssamtakanna Þroskahjálpar,

Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður.

Frumvarpið sem umsögnin á við má lesa hér

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt