Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (fjárhæðir fylgi launavísitölu), 65. mál.
12. desember 2022
Landssamtökin Þroskahjálp þakka fyrir að hafa fengið frumvarpið til umsagnar.
Landssamtökin Þroskahjálp taka undir að hér eru mjög mikilvægt mál að ræða og lýsa stuðningi við frumvarpið.
Samtökin taka einnig undir álit umboðsmanns Alþingis um mikilvægi þess að ákvæði í lögum um almannatryggingar, er varðar viðmið um launaþróun, verði skýrt. Samtökin leggja áherslu á að það verði gert þannig að það tryggi bótaþegum örugglega þann rétt sem augljóslega verður að ætla að markmið þess sé.
Virðingarfyllst.
Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar
Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar
Nálgast má frumvarpið sem umsögnin á við hér.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.