Landssamtökin þroskahjálp þakka fyrir að hafa fengið frumvarpið til umsagnar og vilja koma eftirfarandi á framfæri varðandi það.
Samtökin fagna þeirri framlengingu sem kveðið er á um í frumvarpinu en vilja sérstaklega árétta mikilvægi þess að við undirbúning reglusetningar af þessu tagi verði vandað til verka sem og samráðs við fatlað fólk, eins og mælt er fyrir um að skuli gert í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Í þessu sambandi skal sérstaklega bent á að óforsvaranlegt er að fatlað fólk eigi ekki fulltrúa í nefnd samkvæmt lögunum eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpi því sem hér er til umfjöllunar:
„Þá kemur fram í fyrrnefndri greinargerð að gert sé ráð fyrir að samhliða því að frumvarpið verði að lögum skipi ráðherra tímabundna nefnd undir forystu ráðuneytisins með fulltrúum frá Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna, BSRB, fjármála- og efnahagsráðuneyti, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins og Vinnueftirliti ríkisins.
Þá árétta samtökin mikilvægi þess að koma þeim málum sem um er fjallað í frumvarpinu sem fyrst í varanlegri tilhögun því að óásættanlegt er að sama ákvæðið sé endurnýjað og breytt ár eftir ár, þar sem ekki fæst niðurstaða sem NPA-notendur og aðstoðarfólk þeirra geta fellt sig við.
Landssamtökin þroskahjálp óska eftir að fá fund með velferðarnefnd til að gera betri grein fyrir sjónarmiðum sínum og áherslum varðandi frumvarpið og tengd mál.
Virðingarfyllst.
Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður Þroskahjálpar.
: Nálgast má frumvarp sem umsögnin á við hér.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.