Þroskahjálp merki
EN

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um almannatryggingar (launavísitala), 155. mál

Birt þann:

11.11.2025

Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir og einhverft fólk og fötluð börn og ungmenni. Samtökin byggja stefnu sína og starfsemi á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum sem íslenska ríkið hefur skuldbundið sig til að framfylgja, sem og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.

Íslenska ríkið fullgilti samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja öllum ákvæðum hans. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að samningurinn verði lögfestur og á Alþingi er nú til meðferðar frumvarp um lögfestingu hans og þá er í gangi af hálfu ríkisins framkvæmd sérstakrar landsáætlunar um innleiðingu hans.

28. gr. samningsins hefur yfirskriftina Viðunandi lífskjör og félagsleg vernd. Þar segir í 1. mgr.:

Aðildarríkin viðurkenna rétt fatlaðs fólks og fjölskyldna þess til viðunandi lífskjara, þar á meðal viðunandi fæðis, klæða og húsnæðis, og til sífellt batnandi lífsskilyrða og skulu gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja og stuðla að því að þessi réttur verði að veruleika án mismununar á grundvelli fötlunar.

Tenging við launavísitölu er nauðsynleg til að koma í veg fyrir þá miklu kjaragliðnun, sem fatlað fólk hefur mátt þola á síðustu áratugum. Samtökin lýsa því heils hugar stuðningi við frumvarpið.

Markmið stjórnvalda hlýtur þó að vera að hækka lífeyri fatlaðs fólks verulega umfram hækkun samkvæmt launavísitölu til að leiðrétta það mikla óréttlæti, sem hefur viðgengist og leitt hefur til fátæktar og mjög skertra tækifæra fatlaðs fólks til sjálfstæðs lífs og virkrar þátttöku í samfélaginu.

Landssamtökin Þroskahjálp leggja sérstaka áherslu að mjög brýnt er að bæta kjör þess fólks, sem vegna fötlunar sinnar og/eða mjög lítilla eða engra tækifæra á vinnumarkaði, verður að láta örorkubætur duga fyrir allri framfærslu sinni öll sín fullorðinsár.

Virðingarfyllst.

Guðmundur Ármann Pétursson, formaður Þroskahjálpar

Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar

Málið sem umsögnin fjallar um má finna hér.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt