Þroskahjálp merki
EN

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að reglugerð um málsmeðferð vegna ákvörðunar um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins

Birt þann:

12.05.2026

Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á öll fötluð börn og ungmenni og fólk með þroskahömlun og / eða skyldar fatlanir og einhverft fólk. Samtökin byggja stefnu sína og starfsemi á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum, sem íslenska ríkið hefur skuldbundið sig til að framfylgja, sem og á heimsmarkmiðum SÞ, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.

Íslenska ríkið fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja öllum ákvæðum hans. Samningurinn var lögfestur með lögum nr. 80/2025 og þá er í gangi af hálfu ríkisins sérstök landsáætlun um innleiðingu hans.

Í samningnum ýmis ákvæði, sem hafa mikla þýðingu m.t.t. þeirrar reglugerðar sem hér er til umsagnar, s.s. í 5. gr. (Jafnrétti og bann við mismunun), 7. gr. (Fötluð börn), 12. gr. (Jöfn viðurkenning fyrir lögum), 14. gr. (Frelsi og öryggi einstaklingsins), 17. gr. (Verndun friðhelgi einstaklingsins), 22. gr. (Virðing fyrir einkalífi) og 23. gr., (Virðing fyrir heimili og fjölskyldu).

Í 3. mgr. 4. gr. samningsins (Almennar skuldbindingar) segir:

Við þróun og innleiðingu löggjafar og stefnu við innleiðingu samnings þessa og við annað ákvörðunartökuferli varðandi málefni fatlaðs fólks, skulu aðildarríkin hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, þar á meðal fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.

Í sjöundu almennu athugasemdunum (e. General Comment), sem nefnd samkvæmt samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks hefur sent frá sér fjallar hún um samráðsákvæði samningsins. Nálgast má þessar almennu athugasemdir nefndarinnar á hlekk að neðan.

https://docs.un.org/en/CRPD/C/GC/7

Landssamtökin Þroskahjálp taka undir það sem fram kemur í umsögn ÖBÍ – réttindasamtaka um reglugerðardrögin, dags. 22. apríl 2026 en vilja benda mennta- og barnamálaráðuneytinu á að birting reglugerðardraga í samráðsgátt er alls ekki virk þátttaka og náið samráð í skilningi 3. mgr. 4. gr. samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, sbr. lög nr. 80/2025. Með vísan til þess og þeirra mikilsverðu réttinda og hagsmuna fatlaðra barna og aðstandenda þeirra, sem um er fjallað í reglugerðinni sem hér er til umsagnar, óska samtökin eftir fundi með mennta- og barnamálaráðuneytinu til að fara yfir ákvæði reglugerðarinnar.

Virðingarfyllst.

Guðmundur Ármann Pétursson, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar

Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar

Katarzyna Kubiś, verkefnastjóri Þroskhjálpar í málefnum fatlaðra barna

Málið sem umsögnin fjallar um má finna hér

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt