Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir. Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, Barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum sem íslenska ríkið hefur undirgengist, sem og á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Samtökin taka undir það að mikilvægt er að bæta gæði, gangsæi og jafnræði í úthlutun framlaga sjóðsins vegna málaflokksins og sannarlega tryggja það að fatlað fólk fái þjónustu samkvæmt þörfum.
Samtökin telja hins vegar fullkomlega ótímabært að taka afstöðu varðandi þeirra reglugerðardraga sem hér eru til umsagnar þar sem ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um SIS matið þ.e.a.s. verklagsreglur og notkun. Í áfangaskýrslu II um kostnaðar- og ábyrgðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk kemur fram að verulegur fjöldi umsókna fyrir SIS mat falla undir viðmið og fær því ekki afgreiðslu hjá Ráðgjafa- og greiningsstöð. Einnig er í skoðun fyrirkomulag mats á þjónustuþörf fatlaðs fólks hjá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu.
Óttast samtökin að fatlað fólk falli milli skips og bryggju og fái mögulega ekki þá lögbundnu þjónustu sem þeim ber samkvæmt lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Reglugerðin mun hafa mikil áhrif á hagsmuni og líf fatlaðs fólks og er því eðlilegt að staldra við vegna skorts á samráði og aðkomu fatlaðs fólks og hagsmunasamtökum fatlaðs fólks.
Landssamtökin Þroskahjálp lýsa miklum vilja til virks og náins samstarfs og samráðs við hlutaðeigandi stjórnvöld um þau mikilvægu mál sem hér eru til umfjöllunar og vísa í því sambandi til til 3. mgr. 4. gr. samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, sem hefur yfirskriftina Almennar skuldbindingar:
Þegar aðildarríkin undirbúa löggjöf sína og stefnu samningi þessum til framkvæmdar og vinna að því að taka ákvarðanir um málefni sem varða fatlað fólk skulu þau hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, einnig fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.
Virðingarfyllst.
Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar
Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar
Málið sem umsögnin fjallar um má finna hér.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.