Þroskahjálp merki
EN

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að leiðbeiningum fyrir sveitarfélög um stuðningsþjónustu samkvæmt lögum nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga, með síðari breytingum.

Birt þann:

25.05.2020

Landssamtökin Þroskahjálp vilja koma eftirfarandi ábendingum / athugasemdum við einstakar greinar leiðbeininganna á framfæri:

1. gr.

Réttur til þjónustu og inntak hennar.

Í stað orðalagsins „ ... sem hentar á hverjum stað ...“ í 1. mgr. komi „ ... sem hentar hverjum notanda miðað við aðstæður á hverjum stað ...“. Þá væri til bóta að mati samtakanna að það kæmi skýrar fram í málsgreininni að þjónustans skuli veitt „á forsendum notandans“.

Fyrir aftan 2. mgr. þarf að mati samtakanna að koma texti / leiðbeiningar til sveitarfélaga um að þessi skipting snúi einungis að sveitarfélögunum sjálfum en eigi ekki að snúa að notendum nema þegar mál eru komin í kæruferla.

2. gr.

Gagnaöflun.

Samtökin teldu til bóta ef orðalag væri skýrara hér, þ.e. fumkvæðisskylda sveitarfélagsins að veita einstaklingi fullnægjandi leiðbeiningu og aðstoð við að sækja um allt sem hann þarf og á rétt á, t.d. að tryggja að hann fái öll umsóknareyðublöð frá þjónustuaðila/sveitarfélagi.

3. gr.

Mat á stuðningsþörf.

Samtökin leggja til að eftir „umsækjanda „ í 1. mgr. 3. gr. komi „og í samræmi við raunverulegar stuðningsþarfir“.

7. gr.

Svör við umsókn.

Samtökin leggja til að í geininni verði kveðið á um aðumsækjandi eigi rétt á aðstoð við að kæra ákvörðun og að það sé það skylda sveitarfélags að aðtoða hann við það og/eða aðstoða hann við að komast í samband við réttindagæslumann sem aðstoðar hann við það.

Nálgast má leiðbeiningar sem umsögnin á við hér.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt