Þroskahjálp merki
EN

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um leigubifreiðaakstur, nr. 120/2022 (öryggi í leigubifreiðaþjónustu og starfsumhverfi leigubifreiðastjóra)

Birt þann:

11.03.2025

Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir, einhverft fólk og fötluð börn og ungmenni. Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum sem íslenska ríkið hefur undirgengist, sem og á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.

Samtökin fagnar áformum um breytingar til að tryggja gott aðgengi að hagkvæmri, skilvirkri og öruggari leigubifreiðaþjónustu fyrir neytendur.

Samtökunum hefur borist fjöldi ábendinga þess efnis að farþegar hafi þurft að greiða verulega háar fjárhæðir fyrir ferðir og engar leiðir hafi verið fyrir notendur til að koma sínum kvörtunum á framfæri.

Fatlað fólk er oft mjög berskjaldað gagnvart misnotkun, þ.m.t. fjárahagslegri og ofbeldi af öllu tagi, eins og rannsóknir sanna. Það er mjög mikilvægt að auðrekjanlegt sé hvaða leigubifreið og eða leigubifreiðastöð viðkomandi hefur átt í viðskiptum við. Vegna þessa er nauðsynlegt að gera þessar breytingar og að lögum og mikilvægt að felld verði niður heimild rekstrarleyfishafa til að reka leigubílastöð þar sem aðeins ein leigubifreið hefur afgreiðslu sem og þær breytingar að leigubifreiðastöðvum verði gert að taka við rafrænum upplýsingum um upphafs- og endastöð ferðar, um staðsetningu meðan á ferðinni stendur, að greiðsla sé skráð í gjaldmæli eða með öðrum fullnægjandi hætti að ferð lokinni og að að aðrar nauðsynlegar ráðstafanir verði til að tryggja öryggi og réttindi neytenda.

Virðingarfyllst.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar

Nálgast má málið sem umsögnin á við hér

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt