Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla, orlofs- og desemberuppbót) – Mál nr. S-156/2026
1. september 2026
Landssamtökin Þroskahjálp vísa til umsagnar sinnar, dags. 10. ágúst 2026 um áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 - Mál nr. S-139/2026.
Samtökin fagna þeim áformum um lagasetningu, sem hér eru til umsagnar en árétta að þau telja að skilyrði, sem leiðir til mismununar gagnvart lífeyrisþegum, sem hafa lögheimili erlendis sé óréttlátt og byggist ekki á nægilegum málefnalegum rökum og skora því á félags- húsnæðismálaráðherra að falla frá því skilyrði.
Virðingarfyllst,
Guðmundur Ármann Pétursson,
formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar
Anna Lára Steindal,
framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar
Málið sem umsögnin fjallar um má finna hér.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.