Þroskahjálp merki
EN

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að borgarstefnu

Birt þann:

15.02.2024

Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir og einhverft fólk og fötluð börn og ungmenni. Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum, sem og heimsmarkmiðum SÞ, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.

Samtökunum sýnist að við ritun þessara draga að borgarstefnu hafi lítið eða ekkert verið hugað að fjölbreyttum þörfum fatlaðs fólks. Samtökin vilja því sérstaklega koma eftirfarandi á framfæri við innviðaráðuneytið.

Íslenska ríkið fullgilti samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja öllum ákvæðum hans. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að samningurinn verði lögfestur og þá er í gangi af hálfu ríkisins framkvæmd sérstakrar landsáætlunar um innleiðingu hans.

Í 4. gr. samningsins, sem hefur yfirskriftina Almennar skuldbindingar, segir að aðildarríki samningsins skuldbindi sig til „að taka mið af vernd og framgangi mannréttinda fatlaðs fólks við alla stefnumótun og áætlanagerð.”

Stefnumótun af því tagi sem hér er til umsagnar er mjög mikilvægur þáttur í að innleiða samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks, sem hefur það meginmarkmið að gera fötluðu fólki kleift að vera virkir þátttakendur á öllum sviðum samfélagsins, til jafns við aðra og án aðgreiningar.

Með vísan til þess sem að framan er rakið skora Landssamtökin Þroskahjálp á innviðaráðuneytið að rýna stefnudrögin sérstaklega og vandlega m.t.t. fatlaðs fólks, aðstæðna þess þarfa og réttinda, sem eru sérstaklega áréttuð í samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks. Samtökin lýsa eindregnum áhuga og vilja til samráðs og samtarfs við ráðuneytið við það verkefni og vísa í því sambandi til 3. mgr. 4. gr. samningsins sem hljóðar svo:

Við þróun og innleiðingu löggjafar og stefnu við innleiðingu samnings þessa og við annað ákvörðunartökuferli varðandi málefni fatlaðs fólks, skulu aðildarríkin hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, þar á meðal fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.

Virðingarfyllst.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar

Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar

Nálgast má málið sem umsögnin á við hér.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt