Þroskahjálp merki
EN

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um breytingar á tilvísunum fyrir börn

Birt þann:

08.05.2024

Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fötluð börn og ungmenni og fólk með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir og einhverft fólk. Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum, sem og heimsmarkmiðum SÞ, sem hafa það meginmarkmið að skilja engan eftir.

Landssamtökin Þroskahjálp fagna þessari reglugerð varðandi breytingar á tilvísunum fyrir börn.

Þetta er mikilvægt skref til að einfalda kerfið og skriffinnskuna og einnig til að minnka álagið á foreldra/aðstandendur og heilsugæslulækna.

Samtökin fagna því sérstaklega að heimilt verði að gefa út tilvísun fyrir börn með langvinna sjúkdóma eða fötlun, sem gildir að 18 ára aldri.

Einnig er mjög jákvætt að hjúkrunarfræðingum, er starfa í ung- og smábarnavernd og skólaheilsugæslu, verði heimilt að vísa barni til talmeinafræðings.

Í heild sinni góðar breytingar fyrir farsæld og velsæld allra barna.

Virðingarfyllst.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar

Nálgast má mál sem umsögnin á við hér

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt