Þroskahjálp merki
EN

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um áform um breytingu á lögum um samræmda neyðarsvörun. Mál nr. S-144/2026

Birt þann:

20.08.2026

Landssamtökin Þroskahjálp fagna því að lög um samræmda neyðarsvörun verði tekin til endurskoðunar. Mikilvægt er að nýr lagarammi taki mið af þróun í samskiptatækni og tryggi öllum jafnan, öruggan og raunhæfan aðgang að neyðarþjónustu.

Þroskahjálp telur mikilvægt að réttur til aðgengilegrar neyðarsvörunar verði skýrt tryggður í lögunum sjálfum. Aðgengi má ekki eingöngu ráðast af tæknilegum útfærslum, verklagsreglum eða þróun einstakra þjónustuleiða. Við endurskoðun laganna gefst tækifæri til að festa í sessi þá meginreglu að allir geti leitað neyðaraðstoðar og fengið viðeigandi svörun óháð fötlun, tjáskiptamáta eða stafrænni færni.

Þroskahjálp vill í því sambandi sérstaklega vekja athygli á stöðu fólks með þroskahömlun, einhverfu og annarra sem geta átt í erfiðleikum með samskipti og tjáningu. Aðgengi að neyðarþjónustu snýst ekki aðeins um að einstaklingur geti hringt í 112 eða komið neyðarboðum á framfæri eftir öðrum tæknilegum leiðum. Það þarf jafnframt að tryggja að neyðarþjónustan geti skilið einstaklinginn, átt við hann árangursrík samskipti og brugðist rétt við þörfum hans.

Í neyðaraðstæðum geta einstaklingar átt erfitt með að lýsa því sem hefur gerst, svara spurningum eða gefa upp staðsetningu og aðrar nauðsynlegar upplýsingar. Álag og ótti geta aukið þessa erfiðleika verulega. Sumir nota óhefðbundnar tjáskiptaleiðir eða þurfa einfalt og skýrt mál, stuttar spurningar og lengri tíma til að svara. Viðbrögð einstaklings í neyð geta jafnframt verið túlkuð ranglega ef starfsfólk hefur ekki næga þekkingu á ólíkum tjáskiptum og þörfum.

Þroskahjálp telur því mikilvægt að við endurskoðun laganna verði sérstaklega tryggt:

  • að réttur til aðgengilegrar neyðarsvörunar verði skýrt lögfestur og nái til fólks óháð fötlun, tjáskiptamáta eða stafrænni færni;
  • að unnt sé að koma neyðarboðum á framfæri með fjölbreyttum og aðgengilegum samskiptaleiðum en ekki eingöngu hefðbundnum símtölum;
  • að starfsfólk Neyðarlínunnar og eftir því sem við á, viðbragðsaðilar hafi viðeigandi þekkingu og þjálfun til samskipta við fólk með þroskahömlun, einhverfu og aðra sem þurfa aðlögun eða stuðning í samskiptum;
  • að við þróun neyðarsvörunar verði sérstaklega hugað að auðskiljanlegum samskiptum og ólíkum tjáskiptaleiðum;
  • að aðgengi sé tryggt í allri þjónustukeðjunni, frá því að einstaklingur kemur neyðarboðum á framfæri þar til viðeigandi aðstoð hefur borist og samskipti við viðbragðsaðila eiga sér stað.

Þroskahjálp telur jafnframt mikilvægt að skoðað verði hvernig einstaklingum verði gert kleift, að eigin frumkvæði og með upplýstu samþykki, að forskrá upplýsingar sem geta skipt máli við neyðarsvörun. Slíkar upplýsingar gætu ekki aðeins varðað hjálpar- eða lækningatæki heldur einnig hvernig best sé að eiga samskipti við viðkomandi í neyð, til dæmis að nota þurfi einfalt mál, gefa lengri tíma til að svara eða nýta tiltekna tjáskiptaleið.

Slík skráning verður að byggjast á sjálfsákvörðunarrétti einstaklingsins, skýrum lagaheimildum, meðalhófi og öflugri persónuvernd. Markmiðið á ekki að vera að safna upplýsingum um fötlun einstaklings umfram það sem nauðsynlegt er, heldur að gera honum kleift að veita sjálfur þær upplýsingar sem hann telur geta stuðlað að öruggari og betri þjónustu þegar mest á reynir.

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hefur lagagildi hér á landi. Við endurskoðun laganna þarf því sérstaklega að horfa til ákvæða samningsins um jafnræði og bann við mismunun, aðgengi og rétt fatlaðs fólks til verndar og öryggis þegar hættu- og neyðarástand skapast. Að mati Þroskahjálpar leiðir af þessum skyldum að aðgengi fatlaðs fólks eigi að vera innbyggður hluti af lagaramma og framkvæmd neyðarsvörunar frá upphafi.

Að lokum leggur Þroskahjálp áherslu á að fatlað fólk og samtök þess verði höfð með í ráðum við áframhaldandi vinnslu frumvarpsins og við hönnun, þróun og prófanir á þeim lausnum sem eiga að tryggja aðgengilega neyðarsvörun. Raunverulegt aðgengi verður best tryggt með því að þeir sem reiða sig á þjónustuna fái sjálfir að taka þátt í að móta hana.

Neyðarþjónusta þarf að virka fyrir alla – sérstaklega þegar mest á reynir.

Virðingarfyllst,

Guðmundur Ármann Pétursson

Formaður

Landssamtökin Þroskahjálp

Málið sem umsögnin fjallar um má finna hér

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt