Þroskahjálp merki
EN

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar tillögu til þingsályktunar um orlofshúsnæði örorkulífeyrisþega, 35 mál.

Birt þann:

30.10.2019

Landssamtökin Þroskahjálp þakka fyrir að fá þingsályktunartillöguna til umsagnar og vilja koma eftirfarandi á framfæri við velferðarnefnd og Alþingi varðandi hana.

Örorkulífeyrisþegar eru mjög oft ekki með réttindi hjá stéttarfélögum og hafa yfirleitt miklu minni aðgang að orlofshúsum en landsmenn almennt og þar með þeirri tilbreytingu, afþreyingu og tækifærum til fjölskyldu- og félagslífs sem þau veita. Segja má að slíkur aðgangur teljist vera mikilvægur þáttur í því sem telst vera eðlilegt líf hér á landi. Tækifæri til eðlilegs líf jafns við aðra er meginmarkmið í réttindabaráttu fatlaðs fólks og grunvallarþáttur í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Landssamtökin Þroskahjálp lýsa því eindregnum stuðningi við þingsályktunartillöguna og hvetja velferðarnefnd að beita sér fyrir því að hún verði samþykkt.

Samtökin benda velferðarnefnd og Alþingi á tillögur sem starfshópur skilaði í desember 2016 til félags- og húsnæðismálaráðherra (nú félagsmálaráðherra). Tillögurnar má finna í skýrslu starfshósins, „Framtíðarfyrirkomulag orlofsmála fatlaðs fólks“, sem má nálgast á þessum hlekk:

file:///C:/Users/Lenovo/AppData/Local/Microsoft/Windows/INetCache/Content.Outlook/H6B1B5OW/2016%2012%20Framtíðarfyrirkomulag%20orlofsmála%20fatlaðs%20fólks.pdf

Samtökin óska jafnframt eftir að fá að koma á fund velferðarnefndar til að gera betur grein fyrir sjónarmiðum sínum og áherslum varðandi þessi mikilvægu mál.

Virðingarfyllst,

f.h. Landssamtakanna Þroskahjálpar,

Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður.

Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri.

Þingsályktunartillagan sem umsögnin á við er að finna hér

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt