Þroskahjálp merki
EN

Umboðsmaður Alþingis spyr ráðherra um breytt verklag TR

Umboðsmaður Alþingis hefur sent félags- og barnamálaráðherra bréf þar sem spurt er hvort hann sé meðvitaður um að afgreiðsla umsókna um örorkulífeyri hjá Tryggingastofnun hafi mögulega breyst.

Birt þann:

21.06.2021

Umboðsmaður Alþingis spyr ráðherra um breytt verklag TR

Umboðsmaður Alþingis hefur sent félags- og barnamálaráðherra bréf

þar sem spurt er hvort hann sé meðvitaður um að afgreiðsla umsókna um örorkulífeyri hjá Tryggingastofnun hafi mögulega breyst.

Landssamtökin Þroskahjálp hafa staðið í þessari baráttu upp á síðkastið og fagna fyrirspurn umboðsmanns.

Fyrirspurnin kemur til í kjölfar kvartana og ábendinga sem benda til að þessi framkvæmd kunni að hafa breyst þannig að umsóknum, einkum frá ungu fólki, sé í auknum mæli synjað á þeim grundvelli að endurhæfing sé ekki fullreynd.

Í bréfi til félags- og barnamálaráðherra eru nefnd dæmi um erindi sem umboðsmanni hafa borist þar sem bent hefur verið á að áður en Tryggingastofnun synji umsókn um örorkulífeyri, því endurhæfing sé ekki fullreynd, hafi stofnunin ekki lagt mat á raunverulega möguleika umsækjanda á endurhæfingu. Þá sé þetta niðurstaðan jafnvel þótt fyrir liggi álit sérfræðinga, s.s. lækna, um að frekari endurhæfing muni ekki skila árangri.

Umboðsmaður spyr hvort ráðherra telji tilefni til að bregðast við þeim aðstæðum sem lýst er í bréfinu og þá með hvaða hætti. Ef ekki, er beðið um skýringar á því. Óskað er svara eigi síðar en 28. júní nk.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt