Þroskahjálp merki
EN

Tvö málþing um innleiðingu samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks

Í maí verða haldin tvö mismunandi málþing um innleiðingu samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks sem Þroskahjálp í samvinnu við fleiri aðila stendur að.

Birt þann:

10.05.2017

Tvö málþing um innleiðingu samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks

Samband íslenskra sveitarfélaga í samvinnu við Þroskahjálp, ÖBÍ og Rannsóknarsetur í fötlunarfræðum HÍ stendur að málþingi sem ber yfirskriftina:

Hvaða þýðingu hefur Sáttmáli SÞ um réttindi fatlaðs fólks
fyrir þjónustu og starfsemi íslenskra sveitarfélaga?

Málþing verður haldið á Grand Hóteli í Reykjavík þriðjudaginn 16. maí 2017 kl. 13:00 til 17:00 - enginn aðgangseyrir.

Dagskrána má lesa hér

Reykjavíkurborg, Landssamtökin Þroskahjálp, Rannsóknarsetur í fötlunarfræðum og Öryrkjabandalag Íslands bjóða til málþings á Grand hótel Reykjavík þ. 19. maí. kl. 09:00 - 12:15. Málþingið ber yfirskriftina:

Mannréttindi og algild hönnun,

Hafa allir borgarbúar jafnan aðgang að upplýsingum, menningu, tómstundum, listum, sundlaugum, internetinu, bókasöfnum og stjórnsýslunni?
Dagskrá má lesa hér

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt