Forsetakosningar fara fram laugardaginn 27. júní 2020. Þú getur séð hvar þú átt að kjósa með því að setja inn kennitölu þína hér.
Þú þarf að hafa með þér löggild skilríki með þér þegar þú ferð að kjósa, það eru til dæmis vegabréf eða ökuskírteini. Greiðslukort eru ekki löggild skilríki.
Það er hægt að fara að kjósa núna ef þú vilt ekki bíða með að kjósa. Það heitir að greiða atkvæði utan kjörfundar. Þú getur skoðað hér hvar hægt er að kjósa utan kjörfundar.
Það eru tveir menn sem eru í framboði og vilja verða forseti. Það eru Guðni Th. Jóhannesson sem er forseti núna og Guðmundur Franklín Jónsson.
Á næstu dögum mun Átak — félag fólks með þroskahömlun segja frá frambjóðendunum.
Allt fatlað fólk sem er 18 ára og eldri og eru með íslenskt ríkisfang mega kjósa.
Ef þú ert óviss eða þarft aðstoð getur þú haft samband við réttindagæslu fatlaðs fólks.
Hér er myndband um hvernig eigi að kjósa.
Hér er myndband um hvernig eigi að kjósa utan kjörfundar.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
