Þroskahjálp skorar á alþingismenn að samþykkja þingsályktunartillögu um lögfestingu samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks.
Nú liggur fyrir Alþingi tillaga til þingsályktunar um að samningur SÞ um réttindi fatlaðs fólks verði tekinn í íslensk lög. Samningurinn nær til allra sviða samfélagsins og er markmið hans að tryggja fötluðu fólki stjórnmálaleg, borgaraleg, efnahagsleg, félagsleg og menningarleg mannréttindi til jafns við annað fólk. Samningurinn var gerður þar sem ríki heims, þ.m.t. Ísland, vita og viðurkenna að þar er verk að vinna. Það er á valdi Alþingis og á ábyrgð þess að bregðast við því með þeim eina hætti sem dugir, þ.e.a.s. með því að veita mannréttindum fatlaðs fólks meiri og skýrari vernd í lögum.
Landssamtökin þroskahjálp skora á alla alþingismenn að sýna í verki vilja sinn til að tryggja að fatlað fólk á Íslandi njóti sömu mannréttinda og annað fólk í landinu gerir og finnst sjálfsögð með því að samþykkja þingsályktunartillöguna.
Þingsályktunartillöguna má nálgast hér:
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
