Þroskahjálp merki
EN

Þroskahjálp og Átak á ráðstefnu Inclusion í Brussel

Fulltrúar frá Þroskhjálp og Átaki - félagi fólks með þroskahömlun eru nú stödd á ráðstefnu Inclusion Europe sem fram fer í Brussel.

Birt þann:

07.09.2022

Þroskahjálp og Átak á ráðstefnu Inclusion í Brussel

Í vikunni fer fram ráðstefna Inclusion Europe í Brussel, sem ber heitið End segregation eða Bindum enda á aðskilnað.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar og fulltrúar Átaks - félags fólks með þroskahömlun, þær Birna Guðmundsdóttir og Inga Hanna Jóhannesdóttir eru staddar á ráðstefnunni.

Inclusion Europe eru samtök sem vinna að réttinda- og hagsmunamálum fólks með þroskahömlun og aðstandenda þeirra í Evrópu. Aðild að samtökunum eiga auk Þroskahjálpar 73 samtök frá 39 Evrópulöndum.

Á ráðstefnunni koma saman meira en 200 einstaklingar með þroskahömlun, aðstandendur þeirra, aktívistar og fagfólk. Þátttakendur ræða málefni sem þeim eru hugleikin, deila reynslu sinni og hugmyndum til þess að auka inngildingu og réttindi fatlaðs fólks.

Á ráðstefnunni hitti Unnur Helga fulltrúa Úkraínu, en Landssamtökin Þroskahjálp hafa í samstarfi við hreyfingar fatlaðs fólks á Íslandi sent út nærri 17 milljónir kr. til neyðaraðstoðar fyrir fatlað fólk í Úkraínu sem býr við afar erfiðar aðstæður vegna innrásar Rússlands í landið. Inclusion Europe hefur milligöngu til þess að tryggja að fjármagnið nýtist vel og komist á réttan stað.

Mynd af Unni Helgu, formanni Þroskahjálpar og tveimur konum sem eru fulltrúar Úkraínu. Þær standa fyrir framan banner sem á stendur Inclusion Europe. Þær eru allar með nafnspjöld og barmmerki með úkraínska fánanum.
Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt