Þroskahjálp merki
EN

Yazan Tamimi: Þroskahjálp mótmælir harðlega illri meðferð íslenskra stjórnvalda á Yazan!

Að nema fatlaðan dreng af sjúkrastofnun í skjóli nætur til að flytja hann ásamt fjölskyldu sinni af landi brott er augljóst brot á Barnasáttmálanum og samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Öll meðferð þessa máls er sérlega ómannúðleg og grimmileg.

Birt þann:

16.09.2024

Yazan Tamimi: Þroskahjálp mótmælir harðlega illri meðferð íslenskra stjórnvalda á Yazan!

Þroskahjálp mótmælir harðlega illri meðferð íslenskra stjórnvalda á Yazan Tamimi!

Að nema fatlaðan, verkjaðan og langveikan dreng af sjúkrastofnun í skjóli nætur til að flytja hann ásamt fjölskyldu sinni af landi brott er augljóst brot á Barnasáttmálanum og samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Öll meðferð þessa máls er sérlega ómannúðleg og grimmileg.

Fyrir tveimur árum átti Þroskahjálp í löngu og víðtæku samráði við stjórnvöld og útlendingayfirvöld vegna illrar meðferðar á Hussein Hussein við sambærilegar aðstæður, en Hussein er fatlaður og langveikur maður sem sótt hafði um vernd á Íslandi. Hussein Hussein er ekki hér á landi lengur en var látinn ganga í gegnum sömu vanvirðandi meðferð og fara á mis við þau réttindi sem honum eiga að vera tryggð.

Og nú endurtekur sagan sig. Í ljósi þessa krefst Þroskahjálp svara frá stjórnvöldum um hvernig þau gátu látið þetta óhæfuverk fram ganga - og hvers vegna ekki var óskað eftir umræðu um mál Yazans í ríkisstjórn fyrr en á ögurstundu, þó tilmæli um brottvísun hafi legið fyrir um margra mánaða skeið.

Uppfært 17. september kl. 15.54

Þroskahjálp tekur heilshugar undir þau sjónarmið sem koma fram í orðum félags- og vinnumarkaðsráðherra, Guðmundar Inga Guðbrandssonar.

  • Það voru ekki eðlileg vinnubrögð að sækja Yazan inn á sjúkrastofnun til að flytja af landi brott.
  • Að sjálfsögðu á úrskurður Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Hussein Hussein að kalla á vandaðri vinnubrögð.
  • Og síðast en alls ekki síst að það sé varhugavert að fara í aðra umferð á brottvísun svo stuttu eftir að drengurinn og foreldrar hans voru látin þola þá vanvirðandi meðferð sem fjölskyldan mátti sæta í gærkvöldi.

Þroskahjálp krefst þess að í framhaldi málsins verði hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi og mannréttindi sem grundvallast meðal annars á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og Barnasáttmálanum að fullu virt.

Yazan á heima hér!

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt