Flokkahjálp er verkefni sem Þroskahjálp hefur hleypt af stokkunum til að minna á málefni fatlaðs fólks nú í aðdraganda kosninganna.
Sjá vefsíðuna:
Á vef Flokkahjálpar er m.a. stefnuskrá sem við hvetjum stjórnmálafólk til að stela. Við vonum að sveitastjórnarfólk nýti sér stefnuskrána sem eins konar vegvísi þegar það kemur að því að mynda meirihluta og skrifa sáttmála á komandi vikum.
Nú geta bæði stjórnmálaflokkar og kjósendur greint
hversu inngildandi stefnuskrár framboðana eru

(skjáskot af greiningatólinu)
Inni á
flokkahjálp.is
er
greiningatól
en þar má líma inn stefnuskrár og athuga hversu mikil áhersla er lögð á réttindi fatlaðs fólks.
Ekki nóg með það heldur er framboðunum boðið að
stela stefnuskrá
Flokkahjálpar í málefnum fatlaðs fólks sem einnig er á síðunni.
Greiningatólið hleypir vonandi skemmtilegu lífi í kosningabaráttuna og beinir sjónum að þessum mikilvæga málaflokki sem hefur ekki verið áberandi í aðdraganda kosninganna.
Við vonum að öll framboðin og kjósendur nýti sér Flokkahjálp og að málefni fatlaðs fólks verði þeim ofarlega í huga, hvort sem er í kjörklefanum eða við samningaborðin.
Sjá öll myndböndin
Tengt efni

Kílómetragjald á umönnun
Grein í tilefni af fyrirhugaðri 15,9% hækkun kílómetragjalds Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027.

Stafræn gjá – hugleiðing frá Mennskri ráðgjöf og Þroskahjálp
Út er komin skýrsla um um hvernig megi auka stafrænt aðgengi fólks í Evrópu. Skýrslan er unnin af rannsóknarsetri sem kallar sig EPSON sem er stutt af Evrópusambandinu. Þroskahjálp og Mennsk ráðgjöf skoðuðu skýrsluna í sameiningu.

Aðgengi á Menningarnótt 2026
Reykjavíkurborg hefur sent frá sér upplýsingar um aðgengi á Menningarnótt: Á Menningarnótt verður hluti miðborgarinnar lokaður allri bílaumferð til tryggja öryggi gangandi vegfarenda, og verða engar undantekningar gerðar á því. Bílastæði fyrir fatlað fólk eru staðsett á eftirfarandi stöðum:
