Þroskahjálp merki
EN
Fréttir

Þroskahjálp flytur

Skrifstofa Þroskahjálpar verður lokuð næstu vikur vegna flutninga á nýjan stað. Ekki hika við að hafa samband við okkur ef þú átt eitthvað erindi við Þroskahjálp. Næstu vikur verður líklega best að hafa samband gegnum tölvupóst.

Birt þann:

20.05.2026

Þroskahjálp flytur

Á miðjum aldri er nauðsynlegt að hreyfa sig, og Þroskahjálp sem á stórafmæli í haust ætlar að flytja og halda upp á afmælið á nýjum stað.

Næstu vikur fara í að gera og græja, hlaupa með kassa á milli húsa og koma okkur fyrir.

Skrifstofa Þroskahjálpar verður lokuð þangað til við opnum á nýja staðnum.

Við tilkynnum það sérstaklega þegar nær dregur.

Ekki hika við að hafa samband ef þú átt eitthvað erindi við Þroskahjálp. Síminn er 588 9390.
Næstu vikur verður líklega best að hafa samband gegnum tölvupóst og þar má auðvitað mæla sér mót við einstaka starfsfólk.

Netfang skrifstofu Þroskahjálpar er: throskahjalp@throskahjalp.is, og hér má finna netföng einstakra starfsmanna:

Þroskahjálp: netföng starfsfólks

Við förum ekki langt, rétt rúmlega 400 metra og erum mjög spennt öll að hitta ykkur á nýja staðnum.

Tengdar greinar

Fréttir

Stafræn gjá – hugleiðing frá Mennskri ráðgjöf og Þroskahjálp

Út er komin skýrsla um um hvernig megi auka stafrænt aðgengi fólks í Evrópu. Skýrslan er unnin af rannsóknarsetri sem kallar sig EPSON sem er stutt af Evrópusambandinu. Þroskahjálp og Mennsk ráðgjöf skoðuðu skýrsluna í sameiningu.

Lesa
Fréttir

Aðgengi á Menningarnótt 2026

Reykjavíkurborg hefur sent frá sér upplýsingar um aðgengi á Menningarnótt: Á Menningarnótt verður hluti miðborgarinnar lokaður allri bílaumferð til tryggja öryggi gangandi vegfarenda, og verða engar undantekningar gerðar á því. Bílastæði fyrir fatlað fólk eru staðsett á eftirfarandi stöðum:

Lesa
Fréttir

Hvað ætla ég að kjósa?

Átak býður þér á mál-þing um kosningar um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Lesa