Uppfært: Samráðsfundur með hluteigandi yfirvöldum hefur verið færður til miðvikudagsins 23. ágúst, kl. 17. Fjölmiðlar munu miðla því sem fram fer á þeim fundi.
Landssamtökin Þroskahjálp, ásamt 22 öðrum mannréttindasamtökum, hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þau lýsa miklum áhyggjum af stöðunni sem upp er komin í málefnum fólks á flótta sem vísað hefur verið úr allri þjónustu opinberra aðila.
Þessi 23 mannréttindasamtök hafa nú ákveðið að taka höndum saman við að skora á ráðamenn að bregðast tafarlaust við stöðunni með mannréttindi og mannúð að leiðarljósi.
Samtökin hafa einnig boðað til samráðsfunda með hluteigandi yfirvöldum mánudaginn 21. ágúst nk. kl. 17, í sal Hjálpræðishersins á Suðurlandsbraut 72.
Yfirlýsingu samtakanna má lesa í heild sinni hér:
Neðangreind félagasamtök lýsa þungum áhyggjum af mjög alvarlegri stöðu sem komin er upp í málefnum fólks á flótta sem vísað hefur verið úr allri þjónustu opinberra aðila eftir neikvæða niðurstöðu umsóknar um vernd á báðum stjórnsýslustigum. Afdrif þess, öryggi og mannleg reisn eru í hættu.
Samtökin harma að ekki skuli hafa verið tekið tillit til ítrekaðra varnaðarorða varðandi afleiðingar nýrra lagaákvæða. Þá leikur mikill vafi á að framkvæmdin standist þær mannréttindaskuldbindingar sem íslensk stjórnvöld hafa undirgengist.
Margt sem ráðamenn hafa sagt í þessari umræðu er villandi, óljóst og byggir á skorti á upplýsingum um raunverulega stöðu fólksins.
Samtökin skora á yfirvöld að tryggja öryggi þessa hóps, mannréttindi og grunnaðstoð með virku samráði við hjálpar- og mannréttindasamtök.
Því boða neðangreind samtök stjórnvöld til samráðsfundar nk. mánudag 21. ágúst 2023 klukkan 17.00 í sal Hjálpræðishersins á Suðurlandsbraut 72. Sérstaklega hefur verið óskað eftir viðveru hlutaðeigandi ráðherra í ríkisstjórn Íslands.
Reykjavík, 18. ágúst 2023
Barnaheill
Biskup Íslands
FTA – félag talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd
Geðhjálp
GETA hjálparsamtök
Hjálparstarf kirkjunnar
Hjálpræðisherinn á Íslandi
Íslandsdeild Amnesty International
Kvenréttindafélag Íslands
Mannréttindaskrifstofa Íslands
No Boarders
Prestar innflytjenda, Þjóðkirkjunni
Rauði krossinn á Íslandi
Réttur barna á flótta
Samhjálp
Samtökin 78
Solaris
Stígamót
UNICEF á Íslandi
UN Women á Íslandi
W.O.M.E.N. – samtök kvenna af erlendum uppruna
Þroskahjálp
ÖBÍ – heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
