Þroskahjálp merki
EN
Fréttir

Börnin sem þurfa mestan stuðning mæta afgangi

Úttekt Ríkisendurskoðunar um framkvæmd farsældarlaganna vekur verulega áhyggjur. Niðurstöðurnar sýna að langt er í land að fötluð börn fái þá þjónustu sem þau eiga rétt á.

Birt þann:

10.06.2026

Börnin sem þurfa mestan stuðning mæta afgangi

Ný stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðnar um framkvæmd farsældarlaganna vekur verulegar en því miður ekki óvæntar áhyggjur. Niðurstöðurnar sýna að þrátt fyrir góðan ásetning er enn langt í land með að tryggja börnum þann stuðning og þá þjónustu sem þau eiga rétt á , ekki síst börnum sem þurfa mikinn stuðning.

Niðurstöðurnar staðfesta það sem Þroskahjálp hefur ítrekað bent á, að stuðningur og þjónusta við fötluð börn eru ekki í forgangi.

Við hjá Þroskahjálp höfum um árabil bent á að kerfin sem eiga að styðja við fötluð börn og fjölskyldur þeirra virka ekki sem skyldi og lýst yfir áhyggjum af úrræðaleysi og bið eftir þjónustu. Engu að síður erum við slegin yfir því hversu dökk mynd skýrslan dregur upp af stöðunni. Þar birtast alvarlegir annmarkar sem hafa afgerandi áhrif á líf barna og fjölskyldur þeirra.

Hér er um að ræða börn sem eiga rétt á því að fá stuðning við hæfi, á réttum tíma og án þess að fjölskyldur þeirra þurfi að berjast fyrir hverju einasta úrræði.

Við verðum við að gera þá kröfu að stjórnvöld og þjónustukerfin bregðist hratt og örugglega við þeim ábendingum sem fram koma í skýrslunni. Börn eiga ekki að sitja uppi með afleiðingar þess að kerfin sem eiga að veita þeim stuðning virki ekki.

Við hvetjum öll til að kynna sér skýrsluna og taka þátt í þeirri mikilvægu umræðu sem hún kallar á.

Frétt á vef Ríkisendurskoðunar

Skýrsla Ríkisendurskoðunar

Tengdar greinar

Fréttir

Stafræn gjá – hugleiðing frá Mennskri ráðgjöf og Þroskahjálp

Út er komin skýrsla um um hvernig megi auka stafrænt aðgengi fólks í Evrópu. Skýrslan er unnin af rannsóknarsetri sem kallar sig EPSON sem er stutt af Evrópusambandinu. Þroskahjálp og Mennsk ráðgjöf skoðuðu skýrsluna í sameiningu.

Lesa
Fréttir

Aðgengi á Menningarnótt 2026

Reykjavíkurborg hefur sent frá sér upplýsingar um aðgengi á Menningarnótt: Á Menningarnótt verður hluti miðborgarinnar lokaður allri bílaumferð til tryggja öryggi gangandi vegfarenda, og verða engar undantekningar gerðar á því. Bílastæði fyrir fatlað fólk eru staðsett á eftirfarandi stöðum:

Lesa
Fréttir

Hvað ætla ég að kjósa?

Átak býður þér á mál-þing um kosningar um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Lesa