Þroskahjálp merki
EN

Stefnuskrá fyrir sveitastjórnarkosningar 2014

Landssamtökin Þroskahjálp, Blindrafélagið og Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra settu saman stefnuskrá sem tímasettum markmiðum sem kynnt var á fundum með frambjóðendum í tíu sveitarfélögum. Þessi markmið eru frekar hófstillt, enda sett fram með það í huga að þau séu uppfyllanleg. Við hvetjum nýkjörna sveitastjórnarmenn til að setja markið hátt og gera enn betur.

Birt þann:

28.05.2014

Stefnuskrá fyrir sveitastjórnarkosningar 2014

Landssamtökin Þroskahjálp, Blindrafélagið og Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra settu saman stefnuskrá sem tímasettum markmiðum sem kynnt var á fundum með frambjóðendum í tíu sveitarfélögum.
Þessi markmið eru frekar hófstillt, enda sett fram með það í huga að þau séu uppfyllanleg. Við hvetjum nýkjörna sveitastjórnarmenn til að setja markið hátt og gera enn betur.

Stefnuskrá fyrir sveitarstjórnarkosningar vor 2014

Markmið fyrir 2014 – 2018

Aðgengi (Algild hönnun)

Aðalskipulag og deiliskipulag í sveitarfélaginu taki mið af aðgengi fyrir alla

Allt húsnæði sem ætlað er til almenns félags-, menningar- og tómstundastarfs verði gert aðgengilegt fötluðu fólki

Allar upplýsingar á vegum sveitarfélagsins séu á auðlesnu máli og aðgengilegar fyrir alla

MARKMIÐ FYRIR 2018

• Gerð hafi verið úttekt og áætlun um hvernig aðgengi er tryggt í sveitarfélaginu

• Heimasíður sveitarfélagsins uppfylli aðgengisstaðalin WCAG 2.0 AA (í samræmi við stefnumörkun stjórnvalda um opinber vefsvæði frá 11.10.2012)

• Auðlesið mál verði komið í notkun á öllum miðlum sveitarfélagsins

Atvinnumál

Fjölga atvinnuúrræðum fyrir fatlað fólk í sveitarfélaginu

Sveitarfélagið hafi frumkvæði að því að ráða fatlað fólk í vinnu

Tryggja virkni úrræði fyrir fólk sem vegna fötlunar hefur ekki möguleika á störfum á almennum vinnumarkaði.

Tryggja að fólk sem er nú þegar í virkni úrræðum en getur sótt vinnu á almennum vinnumarkaði fái stuðning til þess.

Tryggja liðveislu á almennum vinnumarkaði fyrir fatlað fólk sem hefur þörf fyrir hana

MARKMIÐ FYRIR 2018

• Virk vinnumiðlun og stuðningur við fatlað fólk á vinnumarkaði sé til staðar á öllum þjónustusvæðum

• Aðstoð við fatlaða atvinnuleitendur sé skilgreind eins og önnur atvinnumál

• 85% fatlaðs fólks á vinnualdri hafi vinnu, virkniúrræði eða stundi nám við hæfi í samræmi við framkvæmdaáætlun um málefni fatlaðs fólks

Búseta og húsnæðismál

Tryggt sé nægilegt framboð sértæks húsnæðis sem fólk hefur þörf fyrir vegna fötlunar

Dregið verði úr notkun herbergjasambýla og þeim sem búa þar nú verði tryggt viðunandi húsnæði í samræmi við nútíma kröfur

MARKMIÐ FYRIR 2018

• Biðlisti eftir sértæku húsnæði fyrir fatlað fólk verði að lágmarki helmingi styttri en hann er í dag

• Gerð hafi verið áætlun um hvernig og hvenær herbergjasambýli verði lögð niður og farið verð að vinna eftir þeirri áætlun

Ferðaþjónusta

Ferðaþjónusta fyrir fatlaða íbúa sveitarfélagsins sé tryggð og að óvissu verði eytt

Ferðaþjónusta fyrir fatlað fólk sé skipulögð og starfrækt í samræmi við óskir og þarfir notenda

Þjónustustig ferðaþjónustunnar sé í samræmi ákvæða laga, reglna og samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

• Markmið fyrir 2018

• Allir sem hafa þörf fyrir samtíma ferðaþjónustu hafi kost á henni .

• Ferðaþjónusta þeirra sem ekki hafa þörf fyrir samtímaferðaþjónustu verði skipulögð þannig að biðtími eftir akstri verði aldrei meiri en 4 klst.

• Reglur verði settar um hámarks tíma sem notendur þjónustunnar þurfi að vera í hverri ferð

• Allir bílstjórar sem annist akstur hafi hreint sakarvottorð og hafi farið á námskeið m.a. um fatlanir.

• Námskeið verði haldin í samstarfi við hagsmunasamtök fatlaðs fólks

Skólamál

Stuðningur við fatlaða nemendur verði tryggður í heimaskóla með sérmenntuðu starfsfólki

Fötluðum nemendum sé tryggð aðstaða við hæfi í skóla og tómstundastarfi

MARKMIÐ FYRIR 2018

• Allir fatlaðir nemendur eigi þess kost að ganga í sinn heimaskóla með þeirri aðstoð sem þeir þarfnast

Þjónusta við fatlað fólk á heimilum sínum

Tryggja þjónustu við fatlað fólk miðað við þarfir hvers og eins til fullrar samfélagsþátttöku.

Fólk sem vegna fötlunar þarf aðstoð við að taka ákvarðanir og/eða láta álit sitt í ljós fái til þess nauðsynlega aðstoð

Þjónusta við fatlað fólks nái til alls lífsins og að nauðsynleg liðveisla sé raunverulegt val en ekki háð aldri eða hvar og með hverjum það býr

MARKMIÐ FYRIR 2018

• Að hámarki 12 mánuðum eftir að sótt hefur verið um þjónustu liggi fyrir staðfest áætlun um það hvernig þjónustan verði veitt

• Allt fatlað fólk geti sótt um notendastýrða persónulega aðstoð NPA

• Þeir einstaklingar sem ekki óska eftir NPA hafi einstaklingsbundin þjónustusamning sem þeir sjálfir eða talsmenn þeirra hafa gert við þjónustuaðila

Þjónusta við nemendur og foreldra á og utan skólatíma

Nemendur fái þann stuðning sem þeir þurfa óháð félagslegri eða efnahagslegri stöðu foreldra

Þjónusta við nemendur vegna fötlunar þeirra rúmist innan fjölskyldustefnu sveitarfélagsins

Lengd viðvera verði tryggð fyrir alla nemendur óháð aldri

MARKMIÐ FYRIR 2018

• Frístundatilboð eftir skólatíma standi öllum fötluðum börnum og ungmennum til boða

Öldrunarþjónusta

Þjónusta við aldrað fólk með fötlun taki mið af aðstæðum og heilsu hvers og eins

Fagleg úttekt sé gerð á heilsufari og félagslegri stöðu aldraðs fatlaðs fólks og að það fái þjónustu við hæfi sem þá er viðbót við þá þjónustu sem það hefur þegar vegna fötlunar sinnar

MARKMIÐ FYRIR 2018

• Fatlað fólk sem nær ellilífeyrisaldri fái áfram notið réttinda sinna sem fatlað fólk og fái að auki þjónustu tengda öldrun sinn

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt