Þroskahjálp merki
EN

Starfshópur skilar frá sér tillögum um aukna þáttöku fatlaðra í listum og menningu

Starfshópur afhenti nú í vikunni Loga Einarssyni ráðherra skýrslu með tillögum um aukna þáttöku fatlaðs fólks í listum og menningu.

Birt þann:

13.03.2026

Starfshópur skilar frá sér tillögum um aukna þáttöku fatlaðra í listum og menningu

Ljósmynd: ÖBÍ

Starfshópurinn sem var skipaður fulltrúum Þroskahjálpar, ÖBÍ réttindasamtaka, Bandalags íslenskra listamanna og Listar án landamæra hóf störf í nóvember 2024 og afhenti nú í vikunni Loga Einarssyni ráðherra skýrslu með tillögum um aukna þáttöku fatlaðs fólks í listum og menningu.

Að sögn Margrétar Norðdahl sem sat í í starfshópnum fyrir hönd Þroskahjálpar höfðu meðlimir hópsins bæði persónulega reynslu af fötlun sem og víðtæka tengingu við listir, menningu og mannréttindabaráttu. Í fyrri hluta skýrslunnar er fjallað um hvernig, bæði innra og ytra aðgengi fatlaðs fólks er að listum og listsköpun í dag. Aðgengi að menningarstofnunum, menningarsjóðum og að listnámi á háskólastigi.

Í seinni hluta skýrslunnar eru lagðar fram tillögur að aðgerðum sem miða að því að efla inngildingu í menningarlífinu og innra og ytra aðgengi. Að menningarstofnunum verði skylt að móta skýra inngildingarstefnu og vinna markvisst að auknu aðgengi í starfsemi sinni. Þá leggjum hópurinn til að stofnaður verði sérstakur inngildingarsjóður í listum, að inngilding verði tryggð í menningarsjóðum ríkisins og að aðgengi fatlaðs fólks að háskólanámi í listum verði bætt.

Markmið tillagnanna er að stuðla að menningarlífi þar sem fatlað fólk hefur raunveruleg tækifæri til að taka þátt – bæði til að njóta listar og skapa hana.
Inngilding í listum og menningu er ekki sérmál fárra að mati hópsins heldur spurning um réttindi og gæði samfélagsins alls.

Skýrslan verður gerð opinber á næstu dögum og bindur hópurinn sterkar vonir til þess að skýrslan nýtist til raunverulegra og róttækra breytinga.


Í starfshópnum sátu:

Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir formaður skipuð án tilnefningar

Margrét M Norðdahl tilnefnd af Þroskahjálp

Kjartan Þór Ingason tilnefndur af ÖBÍ réttindasamtökum

Ólafur Snævar Aðalsteinsson tilnefndur af List án landamæra

Helga Rakel Rafnsdóttir tilnefnd af Bandalagi íslenskra listamanna.

Varamenn:

Agnar Jón Egilsson varaformaður skipaður án tilnefningar.

Sunna Elvíra Þorkelsdóttir tilnefnd af ÖBÍ réttindasamtökum.

Haraldur Civelek tilnefndur af Þroskahjálp.

Ásta Sóley Haraldsdóttir tilnefnd af List án landamæra.

Þórður Högnason tilnefndur af Bandalagi íslenskra listamanna.

Starfsmenn starfshóps fyrir hönd ráðuneytis voru Marta Nordal og Hekla Björk Hólmarsdóttir.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt