Þroskahjálp merki
EN

Stafræn gjá – hugleiðing frá Mennskri ráðgjöf og Þroskahjálp

Út er komin skýrsla um um hvernig megi auka stafrænt aðgengi fólks í Evrópu. Skýrslan er unnin af rannsóknarsetri sem kallar sig EPSON sem er stutt af Evrópusambandinu. Þroskahjálp og Mennsk ráðgjöf skoðuðu skýrsluna í sameiningu.

Birt þann:

27.08.2026

Stafræn gjá – hugleiðing frá Mennskri ráðgjöf og Þroskahjálp

Á Íslandi notum við tölvuna og símann til að gera mjög marga hluti. Margir eru góðir í því en ekki allir.

Við köllum það stafræna gjá þegar það myndast bil á milli þeirra sem geta notað tækni og þeirra sem geta það ekki.

- Sumir geta það ekki vegna þess að þeir búa á stöðum þar sem tengingarnar eru ekki góðar við síma eða internet.

- Sumir geta ekki notað tækni vegna þess að þeir eru ekki góðir að lesa, fá ekki rafræn skilríki eða það að tæknin sem hefur verið búin til hentar þeim ekki.

- Og sumir geta ekki notað tækni því að þeir hafa ekki fengið rétta þjálfun í að nota tæknina.

Á Íslandi geta allir sem eiga síma eða tölvu komist á internetið. En sumum er ekki kennt að nota tækin sem við notum á internetinu.

Það þarf að gera meira í því að hjálpa fólki að nota tölvur og internetið.

Nýlega voru sett lög um að það ætti að passa upp á að vefir stofnana og smáforrit væru aðgengileg fyrir alla.

Það þýðir að það á að vera hægt að nota þessa vefi þó maður sé ekki góður á tölvu, líka þó maður noti tölvu með stuðningsforriti eins og skjálesara.

Nýlega kom líka út skýrsla um stafræna gjá í nokkrum löndum í Evrópu. Það má lesa hana á slóðinni hér fyrir neðan.

Skýrsla um stafræna gjá á vegum EPSON verkefnisins

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Að geta gert ráð fyrir góðu lífi

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga formenn samtakanna fyrr og nú niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar. Þetta er fimmta greinin í ritröðinni.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórn­völd standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lög­fest

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga formenn samtakanna fyrr og nú niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar. Þetta er þriðja greinin í ritröðinni.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Sundlaugin er ekki vandamálið

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga formenn samtakanna fyrr og nú niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar. Þetta er fjórða greinin í ritröðinni.

Lesa pistil