Þroskahjálp merki
EN

Staða fatlaðs fólks - samráðsfundir ráðherra um landið

Félags- og vinnumarkaðsráðherra býður til opinna samráðsfunda um stöðu fatlaðs fólks um allt land.

Birt þann:

19.05.2023

Staða fatlaðs fólks - samráðsfundir ráðherra um landið

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, boðar nú til opinna samráðsfunda um allt land. Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir: ,, Á fundunum verður fjallað um helstu áherslur í þjónustu við fatlað fólk í nútíð og framtíð og hvernig staðið verður að innleiðingu þeirra. Samráðsfundirnir hafa þann tilgang að tryggja milliliðalaust samtal um það sem fólki er efst í huga þegar málefni fatlaðs fólks ber á góma."

Síðustu mánuði hefur Þroskahjálp tekið þátt í vinnu við gerð landsáætlunar um innleiðingu samnings sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Að vinnunni koma, auk Þroskahjálpar, önnur hagsmunasamtök, fulltrúar ráðuneyta og fulltrúar sveitarfélaga. Mikill metnaður hefur verið lagður í vinnuna og hvetjum við nú allan almenning að mæta á þessa samráðsfundi, fá innsýn í vinnuna sem hefur farið fram og koma sínum skoðunum og hagsmunamálum á framfæri.

Fundirnir verða á eftirfarandi stöðum:

22. maí – Reykjanesbær kl. 17 (Bíósalur í Duus-safnahúsum)

23. maí – Akureyri kl. 17 (Hof – Hamrar)

24. maí – Borgarnes kl. 17 (staðsetning augl. síðar)

21. júní – Ísafjörður kl. 12 (staðsetning augl. síðar)

22. júní – Egilsstaðir kl. 17 (staðsetning augl. síðar)

26. júní – Selfoss kl. 17 (Hótel Selfoss)

27. júní – Höfuðborgarsvæðið kl. 17 (staðsetning augl. síðar)

29. júní – Rafrænn fundur fyrir allt landið kl. 20:00

Ágúst – Sauðárkrókur (dagsetning og staðsetning augl. síðar)

Ágúst – Höfn (dagsetning og staðsetning augl. síðar)

Nánar um dagskrá fundanna og skráning á þá er að finna á vef stjórnarráðsins

Nánari upplýsingar

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt