Skýrsla starfshóps um heildarendurskoðun á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir er komin út.
Í skýrslunni koma fram fjölmargar tillögur sem skiptast á mörg málasvið, þ.e. húsnæðis- og búsetumál, atvinnumál, notendastýrða persónulega aðstoð (NPA), hvernig staðið er að samráði aðila og mat á stuðningsþörf.
Fram kemur á vef Stjórnarráðsins að félags- og vinnumarkaðsráðuneytið muni rýna efni tillagnanna og gera tillögu um frekari úrvinnslu og næstu skref. „Við þá vinnu verða ákvæði í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna höfð til hliðsjónar. Skýrsla starfshópsins er mikilvægt innlegg í vinnu við lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, en kveðið er á um lögfestingu hans í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.“
Smelltu hér til að lesa skýrsluna.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
