Aðalfundur lífsskoðunarfélagsins Siðmenntar sendi ályktun frá sér vegna innrásar Rússlands í Úkraínu, og harmar að nú skuli hafin styrjöld í heimsálfu okkar með verulegu mannfalli meðal óbreyttra borgara, sundrun fjölskyldna og samfélaga, og miklum straumi flóttamanna.
Siðmennt ákvað, í ljósi stöðu jaðarsettra hópa í stríðsátökum, að styrkja söfnun Þroskahjálpar, Átaks, Tabú og ÖBÍ um 500.000 kr. í nafni siðrænna húmanista á Íslandi.
Við þökkum félagsmönnum Siðmenntar kærlega fyrir rausnarlegan stuðning við söfnun okkar og fatlað fólk í Úkraínu..
Hægt er að leggja söfnuninni lið með því að millifæra:
Kt. 521176-0409
0526-26-5281
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
