Þroskahjálp merki
EN

Sérfræðihópar fatlaðra barna og unglinga

Umboðsmaður barna auglýsir eftir þátttakendum í sérfræðihópa fatlaðra barna og unglinga .

Birt þann:

01.11.2018

Sérfræðihópar fatlaðra barna og unglinga

Í Barnasáttmála sameinuðu þjóðanna kemur fram að börn og unglingar eiga rétt á að láta skoðun sína í ljós og segja hvað þeim finnst.

Þess vegna ætlar umboðsmaður barna að vera með sérfræðihópa fatlaðra barna og unglinga. Til að fá að heyra hvað þeim finnst mikilvægt, fá ábendingar þeirra og tillögur um það sem má gera betur.

Við erum að leita eftir þátttakendum í sérfræðihópana, strákum á aldrinum 12 til 15 ára og stúlkum á aldrinum 15 til 18 ára.

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt eða ef þú vilt fá frekari upplýsingar hafðu þá samband við Hrafnhildi Snæfríðar- og Gunnarsdóttir, verkefnastjóra, í síma: 525-4176 / 694-3264 eða sendu tölvupóst á hsg@hi.is. Einnig er hægt að hafa samband við umboðsmann barna í síma 800-5999 (gjaldfrjálst númer) eða með tölvupósti á ub@barn.is.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt