Þroskahjálp merki
EN

Samstarf um nýsköpunarvirkni fatlaðs fólks

Landssamtökin Þroskahjálp, Öryrkjabandalag Íslands, Átak - félag fólks með þroskahömlun, Hlaðvarp um mannréttindi fatlaðs fólks, Samtök frumkvöðla og hugvitsmanna og KVENN, félag kvenna í nýsköpun, hafa hafið samstarf um verkefnið „Nýsköpunarvirkni fatlaðs fólks.“ Verkefnið snýst um að auka möguleika fatlaðs fólks til að starfa við nýsköpun annarsvegar, og hinsvegar efla nýsköpun með þátttöku þessa stóra hóps.

Birt þann:

12.10.2021

Upphaf verkefnisins má rekja til þess að Stefan Hardonk, lektor í fötlunarfræðum við HÍ, vann rannsóknarverkefni ásamt nemendum sínum, sem leiddi í ljós mikinn áhuga fatlaðs fólks á nýsköpun, bæði þátttöku í nýsköpunarverkefnum en ekki síður að hefja eigin frumkvöðlaverkefni. Í framhaldinu var efnt til þessa samráðs.

Skýrsla um verkefnið hefur nú verið gefin út, og kynnt fyrir þremur ráðherrum, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra; félags- og barnamálaráðherra og forsætisráðherra.

Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu verkefnisins, nyskopunarvirkni.is þar sem m.a. má finna skýrsluna.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt