Þroskahjálp merki
EN

Sameiginleg yfirlýsing til komandi ríkisstjórnar

Landssamtökin Þroskahjálp, Landssamtökin Geðhjálp og Öryrkjabandalag Íslands hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu til formanna flokkanna sem nú eru í viðræðum.

Birt þann:

08.11.2021

Sameiginleg yfirlýsing til komandi ríkisstjórnar

Landssamtökin Þroskahjálp, Landssamtökin Geðhjálp og Öryrkjabandalag Íslands hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu til formanna flokkanna sem nú eru í ríkisstjórnarviðræðum. Er það ósk samtakanna að lýst verði yfir skýrum vilja í sáttmála ríkisstjórnarinnar um breytingar og endurskoðun á framfærslukerfi almannatrygginga.

„Hvatning til komandi ríkisstjórnar
Reykjavík, 6. nóvember 2021

Landssamtökin Þroskahjálp, Landssamtökin Geðhjálp og Öryrkjabandalag Íslands hvetja komandi ríkisstjórn Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, til að setja í sáttmála sinn skýran vilja til breytinga og endurskoðunar á framfærslukerfi almannatrygginga.

Það er okkar vilji að allt ferli við endurskoðun kerfisins verði unnið í samráði við hagsmunasamtök fatlaðs fólks og að breytingar á kerfinu auki tækifæri til þátttöku í samfélaginu.

Fjölga þarf störfum og starfsúrvali til að mæta þörfum fólks sem hefur misjafna getu. Hið opinbera sýni gott fordæmi með því að skapa breytt úrval hlutastarfa þar sem viðeigandi aðlögun er viðhöfð og hvetji vinnumarkaðinn til samstarfs.

Markmiðið verði að skapa samfélag þar sem allir hafa tækifæri og enginn er skilinn eftir. Undirrituð lýsa yfir miklum vilja til samstarfs og samráðs um þá vegferð.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar

Héðinn Unnsteinsson, formaður Landssamtakanna Geðhjálpar

Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands“

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt