Þroskahjálp merki
EN

Sæti við borðið — ferð um landið

Þroskahjálp, í samstarfi við Fjölmennt og Átak, ferðast nú um landið með fræðslu fyrir fatlað fólk um störf notendaráða.

Birt þann:

03.09.2023

Sæti við borðið — ferð um landið

Þroskahjálp ásamt Fjölmennt og Átaki — félags fólks með þroskahömlun, munu á næstu vikum ferðast um landið með fundarherferðina Sæti við borðið.

Fyrsti fundurinn er á þriðjudaginn næstkomandi, 5. september, á Selfossi kl. 17-19.

Fundarherferðin Sæti við borðið fjallar um stuðning og fræðslu fyrir fólk með þroskahömlun og skyldar fatlanir á landsbyggðinni til aukinnar þátttöku og virkni í notendaráðum.

Í öllum sveitarfélögum/þjónustusvæðum eiga að vera starfandi notendaráð þar sem fötluðu fólki er gert að hafa áhrif um málefni sem skipta máli í lífi þess. Tilgangurinn er að auka áhrif fatlaðs fólks á skipulag og framkvæmd þjónustu og hagsmunamál í sveitarfélaginu.

Með því að gefa fötluðu fólki tækifæri til að vera í notendaráði og skila tillögum um breytingar eru meiri möguleikar á því að sveitarfélagið mæti betur þjónustuþörfum hvers og eins og fái mikilvægar upplýsingar til að gera betur. Þetta getur haft jákvæð áhrif á allt samfélagið og kveikir aðra hugsun um fatlað fólk og þá sem þurfa á aðstoð að halda í lífinu.

Þroskahjálp, Fjölmennt og Átak hvetja fólk með þroskahömlun sérstaklega til að mæta á fundina og læra um starfsemi notendaráðs og hvernig þau geta haft áhrif á skipulag og framkvæmd þjónustu í sínu nærsamfélagi. Félögin hvetja einnig starfsfólk sveitarfélaga til að mæta og óska eftir samstarfi við alla sem að málinu koma, t.d. símenntunarstöðvar, framhaldsskóla o.s.frv.

Hér má sjá staðsetningar og dagsetningar fundanna:

5. september — Selfoss
Staðsetning: Hótel Selfoss
Tímasetning: kl. 17-19

7. september — Reykjanesbær
Staðsetning: Duus safnahús
Tímasetning: kl. 17-19

12. september — Vestmannaeyjar
Staðsetning: Viska, fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja
Tímasetning: kl. 17-19

14. september — Borgarnes
Staðsetning: Hótel Hamar
Tímasetning: kl. 17-19

26. september — Ísafjörður
Staðsetning: Edinborgarhúsið, Bryggjusalur
Tímasetning: kl. 15-17
Fundinum var frestað vegna veðurs.
Ný tímasetning verður auglýst síðar.

28. september — Sauðárkrókur
Staðsetning: Grána Bistro
Tímasetning: kl. 17-19

2. október — Egilsstaðir
Staðsetning: Sláturhúsið - menningarsetur
Tímasetning: kl. 16-18.

Akureyri
Óstaðfest tímasetning, upplýsingar koma síðar.

Húsavík
Óstaðfest tímasetning, upplýsingar koma síðar.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt