Reykjavík Dance Festival býður félagsmönnum Þroskahjálpar afslátt á hátíðina. Eftirfarandi er fréttatilkynning þeirra:
Reykjavík Dance Festival fer fram dagana 20. - 23. Nóvember næstkomandi. Dagskrána má finna hér: www.reykjavikdancefestival.is
Í fjóra daga er dansinn okkar, borgin er okkar, með allar sínar raddir, líkama og samfélög.
Í fjóra daga tökum við yfir borgina með dans og kóreógrafíu, verkum eftir innlenda og alþjóðlega listamenn.
Í fjóra daga sköpum við danshátíð sem er byggð á von, ást og umhyggju. Sýningar, viðburðir, partý, hangs, umræður, fyrirlestrar og fleira.
Við sem störfum að hátíðinni viljum bjóða meðlimum Þroskahjálpar 50% afslátt af sýningum hátíðarinnar. Athugið að afslátturinn er ekki í boði á sýningarnar Spills eða Fegurð í mannlegri sambúð.
Það þýðir að þið fáið miða á sýningar á 1.500 krónur í stað 2.900 krónur.
Hægt er að virkja afsláttinn með því að slá inn RDF2019fagfelag inn í miðasölukerfi tix.is
Ef fólk er með NPA aðstoðafólk fær viðkomandi aðstoðamanneskja frítt á viðburðina. Hringja þarf í tix.is í síma 5513800
Annars er vert að minnast á að frítt er á eftirtaldar sýningar:
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
