Fimmtudaginn 2. maí nk. kl. 13.00 – 16.30 verður ráðstefna á Grand hótel í Reykjavík um stöðu og þarfir fatlaðra barna með innflyjenda-bakgrunn og þjónustu við þau.
Landssamtökin Þroskahjálp standa fyrir ráðstefnunni í samstarfi við margar stofnanir, félög og samtök sem láta sig mál fatlaðra barna með innflytjenda-bakgrunn sérstaklega varða.
Á ráðstefnunni verða flutt mörg mjög áhugaverð erindi til að varpa ljósi á stöðu fatlaðra barna með innflytjenda-bakgrunn í íslensku samfélagi,
Hverjar eru aðstæður þeirra og þarfir, hvernig er þjónustu við þau háttað og hvað má gera til að tryggja að hún komi sem best til móts við þarfir barnanna?
Virtur norskur fræðimaður á þessu sviði Berit Berg, félagsfræðingur, mun flytja erindi á ráðstefnunni.
Kynntar verða fyrstu niðurstöður íslenskrar rannsóknar sem byggir á viðtölum við foreldra fatlaðra barna með innflytjenda-bakgrunn, auk þess sem mæður með slíkan bakgrunn verða meðal fyrirlesara.
Fagfólk og aðrir sem koma að þjónustu og töku ákvarðana varðandi fötluð börn með innflytjenda-bakgrunn og aðstandendur þeirra eru sérstaklega hvattir til að taka daginn strax frá til að missa alls ekki af þessari mikilvægu ráðstefnu.
Ekkert gjald er á ráðstefnuna.
Dagskrá má skoða hér
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
