Þroskahjálp merki
EN

Óskað eftir heilbrigðisstarfsfólki í bakvarðasveit

Vegna fjölgunar COVID-19 smita hefur verið ákveðið að virkja bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar.

Birt þann:

03.11.2021

Óskað eftir heilbrigðisstarfsfólki í bakvarðasveit

Ljósmynd: Heilbrigðisráðuneytið

Vegna fjölgunar COVID-19 smita hefur verið ákveðið að virkja bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar.

Í tilkynningu segir að þetta sé nauðsynlegt til að mæta mönnunarvanda sem skapast getur vegna veikinda eða tímabundinnar sóttkvíar heilbrigðisstarfsfólks ef smit kemur upp á heilbrigðisstofnunum. Biðlað er til heilbrigðisstarfsfólks sem hefur tök á að veita tímabundið liðsinni ef á reynir um að skrá sig í bakvarðasveitina.

Bakvarðasveit heilbrigðisþjónustu var sett á fót í upphafi COVID-19 faraldursins þegar ljóst var að mikilvægar heilbrigðisstofnanir gætu lent í mönnunarvanda vegna veikindafjarvista starfsfólks eða fjarvista vegna sóttkvíar. Þetta fyrirkomulag hefur reynst afar vel og skipt sköpum þegar heilbrigðisstofnanir hafa þurft að manna stöður með litlum sem engum fyrirvara. Í ljósi þess að smitum af völdum COVID hefur farið fjölgandi undanfarið og ljóst að mikilvæg heilbrigðisþjónusta getur raskast ef smit koma upp telja heilbrigðisyfirvöld nauðsynlegt að óska eftir heilbrigðisstarfsfólki á skrá í bakvarðarsveitinni sem er reiðubúið að hlaupa í skarðið ef á reynir.

Nánari upplýsingar og skráning hér

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt