Þroskahjálp merki
EN

Nýr starfsmaður

Þórarinn Snorri Sigurgeirsson hefur verið ráðinn á skrifstofu Þroskahjálpar sem verkefnastjóri reksturs.

Birt þann:

23.11.2021

Nýr starfsmaður

Þórarinn Snorri Sigurgeirsson hefur verið ráðinn á skrifstofu Þroskahjálpar sem verkefnastjóri reksturs. Hann er stjórnmálafræðingur að mennt og hefur á síðustu árum starfað fyrir hin ýmsu félagasamtök. Þórarinn Snorri hefur í störfum sínum unnið að fjölbreyttri réttindabaráttu í þágu jaðarsettra hópa.

Þórarinn Snorri mun sinna verkefnum á skrifstofu er varða daglegan rekstur og móttöku, og mun m.a. taka við verkefnum Ástu Friðjónsdóttur og Helgu Hjörleifsdóttur, sem báðar hafa starfað um árabil hjá samtökunum en ljúka störfum sökum aldurs um áramót.

Við bjóðum Þórarin Snorra velkominn til starfa og hlökkum til samstarfsins!

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt